Kvenna Retreat

KVENNA RETREAT, 18.- 21. MAÍ 2023

Kvenna retreat er fyrir þig ef þú vilt komast á fallegan og friðsælan stað og endurnæra huga, líkama og sál. Þú færð tækifæri til að baða þig í sjálfsrækt og lærir leiðir til að innleiða góðar venjur inn í líf þitt. Þú ert leidd í gegnum  töfraheim jógaiðkunar og hugleiðslu. Þú færð tækifæri til að slappa af og hvílast og njóta þess að vera í núinu laus við allt áreiti. Endurhlaða þig, losa um streitu og dekra við þig. Þetta er ferð þar sem þú setur þig í forgang.

Markmiðið er að í lok námskeiðs farir þú heim með tösku fulla af verkfærum sem gerir þér kleift að lifa meira í núinu, tileinka þér jákvæðara hugarfar og lifa í meira jafnvægi. Þú lærir leiðir til að sleppa tökum á því sem þjónar þér ekki og bjóða velkomið eitthvað nýtt sem getur aðstoðað þig að skapa líf í takt við þinn innri kjarna. Lögð er áhersla á að gera andlega iðkun skemmtilega, einfalda og aðgengilega.

Innra með okkur öllum býr fjársjóður og á þessu námskeiði lærir þú leiðir til að losa hann úr læðingi.

Hugmyndafræði námskeiðsins byggir á jákvæðri sálfræði og jóga. Einnig er notuð hugmyndafræði Living Yolates sem samanstendur af þremur hreyfistílum. Jóga, pilates, dans ásamt orkuvinna „energy work“. Þessu verður blandað saman í fallegt flæði til að skapa heildræna, alhliða og jákvæða upplifun þátttakenda. Dagarnir innihalda góða blöndu af iðkun og hvíld. Iðkunin okkar mun m.a. innihalda hugleiðslu, jóga, dans, pilates, fræðslu, hvíld, öndunaræfingar, dagbókarskrif og ýmsar hugarfarslegar æfingar sem miða að því að efla okkur og styrkja. Á milli æfinga verður gefinn tími til að njóta og slaka á.

Þú þarft enga reynslu í jóga, pilates eða hugleiðslu. 

 Hægt er að kaupa fallegt gjafabréf.

Þátttakendur fá 15% afslátt af Þakklæti – dagbók sem leiðir þig í átt að aukinni hamingju eftir Erlu Súsönnu námskeiðshaldara. Hægt verður að kaupa bókina á staðnum.

Fyrirspurnir sendist á tofrakistanmin@gmail.com

Þegar þú hefur skráð þig þá færð þú tölvupóst og ert beðin um að borga staðfestingargjald sem er 20.000kr og er óafturkræft. Borga þarf ferðina að fullu fyrir 1.apríl 2023. Hafðu samband ef þú vilt skipta greiðslunum upp og við finnum lausn á því.

Hlakka til að skapa töfra með þér,

Bjartar kveðjur,

Erla Súsanna

 

Date

18 - 21/05/23
Expired!

Time

All Day
Erla Susanna

Organizer

Erla Susanna
Email
tofrakistanmin@gmail.com
Website
https://tofrakistan.is/